Dísill CMS - Tæknilegar upplýsingar

Dísill fylgir eftir ströngustu .NET stöðlum frá Microsoft

+Disill 4

+Disill 4 er skrifað í .NET umhverfi frá Microsoft og notast við MS-SQL gagnagrunn.
Einfalt er að byggja upp útlit með sniðmátum sem nýta má um allan vefinn.

Efni vefsins er einfalt að breyta og viðhalda með einingum sem settar eru á hverja síðu eða hengdar á sniðmát sem birtist þá á þeim síðum sem nota það sniðmát.

Hægt er að setja ótakmarkaðan fjölda af einingum á hverja síðu. Kerfinu fylgja helstu einingar sem gott vefumsjónarkerfi ætti að hafa.

Hægt er að stjórna birtingu / læsingu á öllum einingum á hverri síðu.  Hvenær á að birta eininguna og hvenær hún á að fara úr birtingu, á hún að vera sýnileg öllum?


Tæknileg lýsing kerfis:
Forritunarmál: .NET 2
Gagnagrunnur: Microsoft SQL Server 2003 / 2005 / 2008
Vefþjónn: IIS 6 / IIS 7

Hugbúnaðarkröfur:
Windows 2003 Server eða nýrri
SQL Server 2003 / 2005
.NET 2 umhverfi uppsett á vefþjóni

Vélbúnaðarkröfur:
Intel Pentium 4 eða betra
1 GB vinnsluminni
10 GB diskapláss