Vörur

Þegar þekking og reynsla skiptir máli

Dísill CMS Vefumsjónarkerfi

Dísill vefumsjónarkerfið er eitt aðgengilegasta og sveigjanlegasta vefumsjónarkerfi á markaðnum í dag.  Kerfið býður upp á óþrjótandi möguleika við uppbyggingu, viðhald og umsjón vefja, enda notendur þess í dag vel á átta hundruð og þar á meðal mörg af stærstu fyrirtækjum landsins.
Dísill varð til árið 1999 og hefur verið í stöðugri þróun síðan eða í rúm tíu ár.

Dísill Booking

Dísill Booking er öflug lausn sem getur skalast með þínu fyrirtæki.  Hvort sem þú vilt selja einfaldar gönguferðir, eða margslungnar skoðunarferðir með akstri og bátsferðum þá leysir Dísill Bookings málið. Birgðarhald í kerfinu er ákaflega auðvelt og þægilegt.  Aðgangsstýring er fullkomin, þriðji aðili getur t.d. haft fulla stjórn á ákveðnum vörum eða vöruflokkum.

WorkForce Verk- og tímaskráningakerfi

Er öflugt verk og tímaskráningakerfi fyrir umsýslu á verkefnum og verliðum fyrir fyrirtæki.  Stjórnendur geta fylgst á auðveldan og þægilegan máta með þróun verka og tímavinnu starfsmanna.  Jafnframt fá starfsmenn góða yfirsýn yfir verk sín, hvaða verk þeir eru að vinna í ásamt því að stökkva á milli verkefna.

StoreFront Vefverslunarkerfi

Breyttir tímar á sviði verslunar á Internetinu gera StoreFront að hagkvæmri lausn fyrir fyrirtæki.  StoreFront er ný kynslóð netverslunarkerfis sem er beintengt við bókhaldskerfi.  Kerfið hentar fyrir allar tegundir verslana, hvort um er að ræða einfalda eða yfirgripsmikla netverslun með þúsundir vörutegunda. Skoða nánar