Leitarvélabestun

Vefsíða er „lifandi“ fyribæri.

Stöðugt þarf að hlúa að henni og viðhalda til þess að ná góðum árangri .

Rætt er um  að hanna eigi vefi með tilliti til notenda,  en ekki síst þarf huga að því að hanna vefinn með tilliti til leitarvélanna. Ljóst er að stærstur hluti umferðar á flest öllum vefum á kemur frá leitarvélum, og er því mjög mikilvægt mikilvægt að horft sé til allra hönnunarþátta strax í upphafi.

 

Gott vefumsjónarkerfi getur ráðið úrslitum um hvernig vefur spjarar sig á leitarvélum.

Dísill vefumsjónarkerfi Atómstöðvarinnar er einfalt og notendavænt, en ekki síður hannað með það fyrir augum að tryggja að vefsíðan finnist á helstu leitarvélunum.  Dísll vefumsjónarkerfið hentar vel fyrir innri og ytri vefi fyrirtækja og stofnana.  Dísill er sveigjanlegt vefumsjónarkerfi sem vex auðveldlega með þér.  

Í Dísill getur þú auðveldlega sett inn sjálfur: 

  • Meta titill (meta title)  Titill síðunnar sem skoðuð er. 
  • Meta lýsingu (meta Description) Lýsing á efni síðunnar.
  • Meta lykilorð (Meta keywords) Upptalning á orðum sem lýsa vefnum.
  • ATL tög á myndir,  þá sér leitarvélin hvað er á myndinni.
  • Hreinar slóðir án parametra

Mest er ekki alltaf best

Eitt það mikilvægasta við markaðssetningu á leitarvélum er val á leitarorðum. Gæði orðanna skiptir meira máli en fjöldinn. Leitarorðin þarf að staðsetja rétt á síðunni til þess að leitarvélarnar skilji að þau skipti máli fyrir innihald síðunnar.

Leitarvélarnar þurfa líka að fá vísbendingu um að vefurinn skipti einhverju máli fyrir netsamfélagið. Það meta leitarvélarnar út frá þeim tenglum sem vísa yfir á vefinn. Flestar stóru leitarvélanna skoða ekki bara textainnihald vefsíðna, heldur líka innihald þeirra vefsíðna sem vísa á þær. Og skiptir það máli hvaða orð eru notuð á og í kringum tenglana sem vísa á viðkomandi síðu og hversu margir þeir eru. Textinn sem kemur fram í tenglinum þarf að vera á sama tungu máli og lendingarsíða fyritækisins

Vísanir frá vefsíðum sem teljast vera "vinsælar" í tengslum við ákveðin leitarorð, vega almennt mun þyngra en vísanir frá smærri, óþekktari vefsvæðum.

Allir sem reka vefsíðu vilja vera á top tíu, því flestir notendur finna það sem þeir eru að leita að á fyrstu síðu.  Það að vera númer ellefu eða neðar þýðir að fjölmargir missa af síðunni þinni.

Ef þú vilt ná langt í markaðssetningu á netinu, talaðu við okkur strax í dag. Síminn hjá okkur er 516 9000 eða smelltu hér og fylltu út vefformið.

Fáðu fría kynningu!

Hafðu samband við okkur, þú getur fyllt út formið að neðan eða slegið á þráðinn í síma 516 9000.


Sub mailform - Atómstöðin