Í upphafi skal endinn skoða!
....einnig tilgang og þarfir og þá muntu örugglega fá það sem þig vantar þegar upp er staðið.
Öll verkefni þurfa einhverskonar greiningu, sum eðlilega meir en önnur.
Góð grunnvinna skilar fyrirtækjum og félagasamtökum raunhæfri kostnaðaráætlun hvað varðar uppsetningu, viðhald og þróun vefsins. Mikilvægt er að hafa skýra stefnu og vita hvaða leiðir munu líklega skila árangri. Með markvissri vefstefnu er hægt að hækka þjónustustigið og draga úr rekstrarkostnaði.
Með góðri greiningu og ráðgjöf geturðu jafnvel sparað stórar upphæðir án þess að slá af kröfum!
Atómstöðin býður upp á greiningu og ráðgjöf þegar kemur að vefmálum. Hvort sem er um að ræða nýjan vef, endurbætur á núverandi vef, eða sérstakt sölu- og markaðsátak þá höfum við mikla reynslu að miðla til okkar viðskiptavina.
Dæmi um internetráðgjöf Atómstöðvarinnar:
- Þarfagreining nýrra vefja.
- Endurbætur á núverandi vefjum.
- Markaðssetning á netinu
- Leitarvélagreining (SEO)
- Tölulegar greiningar á heimsóknum
- Markaðsátak á netinu.
- Sérlausnir
Þarfagreining:
Þarfagreining er greining á þörfum viðskiptavinar. Markmiðin skilgreind í víðasta samhengi og vefstefna fyrirtækisins mótuð. Góð þarfagreining er forsenda þess að hægt sé að byggja upp framtíðarsýn vefja og vinna markvisst að henni.
- Hver er tilgangur vefsins?
- Hvert er markmið vefsins?
- Hvaða hlutverki á vefurinn að gegna?
- Hvernig náum við þessum markmiðum?
- Nákvæm uppbygging vefsins.
Við skilum þér:
- Skýrslu sem lýsir framkvæmdinni og nákvæmri skilgreiningu á uppbyggingu vefsvæðisins.
- Framkvæmdaáætlun um verkið og skilgreining á verkþáttum.
- Grófri hönnun („wireframe“)
- Virknilýsingu
Hafðu samband fyrir frekari upplýsingar!