Aðferðarfræðin...

Svona gerum við í sex skrefum!

Númer eitt er að kynnast þér og verkefninu!

  • Fyrst hlustum við á þig, góð innleiðing speglar þínar þarfir.
  • Að hverju leita viðskiptavinirnir á vefsíðunni og af hverju eru þeir þar. Hvað gera þeir í dag og hvað viljum við að þeir geri.
  • Hvað gerir samkeppnin og hvað getum við gert betur.
  • Hvaða virkni kallar vefurinn á og hvað er í boði.
  • Hvað áherslu leggjum við á framtíðina og framtíðarþróun.

Svo þarf að móta verkið!

  • Við byrjum að móta vefinn og markmið. Teiknum upp veftré í samvinnu.
  • Við rýnum í samspil efnis og viðmóts.
  • Við grófteiknum upp virkni , viðmót og efni (WireFrame)
  • Virknilýsing á mannamáli unnin í samvinnu við forritara og viðskiptavin.
  • Við berum undir, breytum og bætum, undirbúum verkið og tökum ákvarðanir.

Hönnun viðmóts og virkni

  • Útlit og virkni síðunnar hönnuð, skv. Wire Frame og þeirri útlitsstefnu sem liggur fyrir.
  • Sniðmát og útfærslur á efniseiningum hönnuð. Stíll fyrir efni, texta myndir stílfært og mótað.
  • Virkni fullmótuð, hönnuð stílfærð.
  • Rýnt í efni síðunnar og gerð sniðmáta.

Forritun viðmóts og innleiðing á vefumsjónarkerfi

  • Útlit síðunnar forritað og virkjað, farið eftir stöðlum um samhæfingu um virkni og birtingu ólíkra vafrategunda.
  • Uppsetning kóða og frágangur tekur mið af leitarvélabestun og aðgengi fyrir skjálesara f. sjónskerta.
  • Sérforritun innleidd og prófuð
  • Breytingar og prófanir á allri virkni
  • Viðmót og virkni innleidd í vefumsjónarkerfi.

Efnisvinnsla og útfærslur!

  • Efnisfrágangur og uppsetning er gríðarlega mikilvægur þáttur og hefur áhrif á upplifun, upplýsingavægi, útlit og styrkleika vefja á leitarvélum.
  • Textar, fyrirsagnir, myndmál og myndefni frágengið á vef.
  • Þegar efni er frágengið er upplagt að framkvæma viðsmótsprófanir með fókusgrúppur og gera breytingar á efni, virkni og efnisþáttum í samræmi við niðurstöður.
  • Í þessu ferli er gott að fá þá starfsmenn sem munu vinna með vefinn inn í verkefnið og vinna samhliða við efnisuppsetningu og læra jafnóðum að vinna með Disill CMS.
  • Regluleg námskeið eru á Disill CMS í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands.

Afhending og eftirfylgni

  • Við afhendingu á Live umhverfi er vefurinn fullprófur bæði af starfsmönnum og tólum sem við höfum yfir að ráða.
  • Allir vefir Atómstöðvarinnar eru tengdir Google Analytics vefgreiningartólinu til að fylgjast með högun notenda og fjölda.
  • Atómstöðin býður yfirgripsmikla þjónustusamninga sniðna að þörfum hvers og eins til að tryggja viðhald, gæði og framþróun vefja.
  • Með úttektum á tölulegum upplýsingum úr Google Analytics má virkja vannýtt tækifæri og velta upp nýjum möguleikum sem gætu skilað árangri á vefnum.
  • Vefsíða er lifandi miðill sem kallar á virka umsýslu til að ná sem bestum árangri, eftirfylgni og framþróun geta því skipt sköpum um árangur.