Starfsmannastefna
Okkar markið eru að fyrirtækið hafi yfir að ráða hæfu, áhugasömu og vel þjálfuðu starfsfólki, sem axlar ábyrgð og sýnir frumkvæði í starfi og taki þannig virkan þátt í framþróun fyrirtækisins.
Við lögum okkur að breyttum kröfum sem starfið gerir til okkar, svo sem vegna tæknilegrar og faglegrar þróunar og erum reiðubúin að þjálfa okkur til nýrra og breyttra verkefna.
Við leggjum áherslu á:
- markviss vinnubrögð og frumkvæði í starfi
- hvetjandi starfsumhverfi
- að starfsmenn þekki gæðastefnu- og hlutverk fyrirtækisins
- að hæfni ráði vali á starfsmönnum
- að fyrirtækið sé eftirsóknarverður vinnustaður þar sem starfsfólk er búið undir krefjandi verkefni.
Upplýsingar:
- Við leggjum kapp á markvissa upplýsingagjöf til starfsmanna með reglubundnum fundum, með skilvirkri notkun upplýsingatöflu og tölvupóstum. (innrivef)
- Starfsmenn vinna almennt í opnum vinnusvæðum, sem á að greiða fyrir samskiptum, upplýsingaflæði og skjótri ákvarðanatöku.
Starfsandi og virðing:
- Við viljum stuðla að góðum starfsanda og sýna hvort og öðru virðingu, umburðarlyndi og jákvætt viðmót.
Við höfum yfir að ráða góðu starfsmannafélagi sem skipuleggur reglulega viðburði ss. vorferðir, haustferðir, jólahlaðborð og árshátíðir. Í gegnum tíðina hefur starfsmannavelta fyrirtækisins verið lítil og þannig hefur mikil þekking orðið til og varðveist í fyrirtækinu.
Hafir þú áhuga á að kynnast okkur frekar eða jafnvel sækja um starf, bendum við á hægt er að hafa samband við okkur í gegnum sos@atomstodin.is eða síma 516 9000.