Samstarfsaðilar
Við hjá Atómstöðini vitum að við getum ákaflega margt. En líklegast, sem betur fer, þá eigum við marga vini og marga ansi klára. Þess vegna finnst okkur samstarfsaðilar mjög mikilvægir. Þeir koma úr ýmsum áttum. Við eigum samstarfsaðila í hugbúnaðargeiranum, auglýsingabransanum, markaðs og pr málum og úr eiginlega lang flestum greinum miðlunar. Endilega kíkið á hvað vinir okkar hafa uppá að bjóða.
Fíton
Fíton er ein af allra fremstu auglýsingastofum landsins. Atómstöðin hefur unnið talsvert af nýmiðlun fyrir Fíton og viðskiptavini þeirra.
Miracle
Öflugur samstarfsaðilli enda frábært fólk sem kann fáránlega hluti. Miracle er óháð þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni.
Korta
Fremstir í kassa og birgðarkerfum. Þeir bjóða uppá öflugan hugbúnað sem getur m.a talað við Disil og flest bókhaldskerfi sem eitthvað vit er í.
Merkúr Point
Fremstir í kassa og birgðarkerfum. Þeir bjóða uppá öflugan hugbúnað sem getur m.a talað við Disil og flest bókhaldskerfi sem eitthvað vit er í.
Basis
Snillingar í hýsingu tölvukerfa.
Miðstræti
Miðstræti eru í næsta nágrenni við okkur. Þeir eru svakalegir 3D og vidjó nördar. Þeirra helstu afrek eru m.a "essasú" froskurinn sem þeir unni fyrir Fíton, BT músin og ótrúlegir hæfileikar í Guitar Hero.
Auglýsingamiðlun
Fremstir í miðlun auglýsinga og greiningarefni. Klárt mál að þarna eru mestu fagmenn landsins á sviði birtinga.
Radixx
Fyrirtæki sem staðsett er í Florida. Það er kannski langt þangað en þeir eru vinir okkar. Höfum unnið náið með þeim í stórum verkefnum.
DK hugbúnaður
DK hugbúnaður er framleiðandi dk viðskipta- og upplýsingakerfa og eru í dag með hátt í fjórða þúsund fyrirtæki sem nota DK bókhaldskerfið þeirra.
Atómstöðin og DK hugbúnaður hafa átt gott samstarf með tengingar á milli StoreFront netverslunarkerfi og DK bóhaldskerfisins.