Við leitum að frábæru starfsfólki
28.3.2010
Hjá Atómstöðinni vinnur samheldin og röskur hópur sem nýtur þess að ná árangri í starfi. Nú viljum við stækka þann góða hóp og skimum eftir:
.net forriturum
Forritun á sérlausnum Atómstöðvarinnar ásamt þróun á stoðkerfum.
Forritun í .Net C# fyrir vefinn
Gagnagrunnsforritun MS Sql
Viðmótsforriturum
Vefun á útliti og virkni vefsvæða ásamt aðkomu að þróun á sérlausnum og útfærslum á stoðkerfum.
CSS, Java Script, XHTML
Vef-og viðmótshönnuði
Hönnun a nýjum vefjum ásamt hönnunarvinnu á efni og nýjungum á eldri vefi viðskiptavini okkar. Brennandi áhugi á hönnun, viðmótsvirkni, efnisuppsetningu.
Við leitum að aðilum með reynslu, menntun og metnað til að skila af sér framúrskarandi verkum. Við reiðum okkur á sjálfstæð vinnubrögð, ríka ábyrgðartilfinningu og útsjónarsemi.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið með því að senda tölvupóst á sos@atomstodin.is. Öllum umsóknum verður svarað og gætt er fyllsta trúnaðar í meðhöndlun starfsumsókna.