Við leitum að frábæru starfsfólki

Við leitum að aðilum með reynslu, menntun og metnað til að skila af sér framúrskarandi verkum. Við reiðum okkur á sjálfstæð vinnubrögð, ríka ábyrgðartilfinningu og útsjónarsemi.

Opnað fyrir tilnefningar til íslensku vefverðlaunanna

Samtök vefiðnaðarins boða til Íslensku vefverðlaunanna 2009 sem fara nú fram í níunda sinn þann 12. febrúar 2010. Opnað hefur verið fyrir tilnefningar og verður skráning opin á vef Samtaka vefiðnaðarins, http://svef.is/islensku-vefverdlaunin/ fram til 31.janúar 2010.

Icelandicmarket opnar nýjan lífstíls verslunarvef.

Icelandicmarket hefur opnað vef sem er hönnunar og lífstílsvefur.  Markmið Icelandic Market er að bjóða upp á íslenskar hönnunar- og lífstílsvörur á erlendum markaði.
 
Vefurinn er afskaplega notendavænn og stílhreinn.  Vefurinn er hannaður í samstarfi við Atómstöðina.
 
Vörur sem Icelandic Market er að selja eru Farmers market, Blue lagoon, Hendrikka Waage, Kríu skartgripir, Ingibjörg Hanna og margir aðrir þekktir aðilar.

Vefurinn keyrir á StoreFront og er beintengdur við DK bókhaldskerfi og greiðslugátt Kortaþjónustuna.
Sjá má vefinn á www.icelandicmarket.com

Opið milli jóla og nýárs

Skrifstofa Atómstöðvarinnar verður opin milli jóla og nýárs en lokað á aðfangadag og gamlársdag. Við óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllum til sjávar og sveita, gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Emami velur StoreFront frá Atómstöðinni.

Emami er nýtt og ferskt íslenskt hönnunarteymi sem leggur metnað sinn í hönnun á breytanlegum fötum. Áhersla er lögð á að skapa glæsilegan fatnað sem byggir á sama hugtaki og limitless kjóllinn sem kom frá okkur fyrst; fjölbreytileiki og framúrstefnuleg hönnun úr vönduðum efnum.

Hvernig verður vefur sýnilegur gagnvart leitarvélum?

Þegar nýr vefur er settur upp vill fólk oft gleyma aðalatriðinu, “hvernig finnst ég á vefnum”. Með smávægilegri vinnu er einfalt að flýta ferlinu. Hér eru nokkur skref sem hjálpa til.

Almenn ánægja með Disil 4

Í byrjun árs kom út ný útgáfa af Disil CMS. Tekið hefur verið til í notendaviðmóti og aðgengi einfaldað. Þá er búið að einfalda umsýslu eininga og samræma allt útlit milli uppsetningarskjáa. Tungumálastuðiningur er orðinn enn öflugri og Disill hefur eignast nýja vini, en nú er hægt að vinna í Chrome og Opera í Disil CMS.

Bókunarvefur fyrir Arctic

Nýverið setti Atom01 upp nýjan bókunarvef fyrir Arctic Adventures. Vefurinn er hugsaður sem miðlægt bókunarsvæði þar sem Arctic geta vísað af öðrum vefsvæðum umferð og þannig getur viðskiptavinur bókað hvaða ferð sem í boði er.

Álafosskvosin er vagga lista

Álafossull er á við gull! Í Álafosskvosinni er Álafossbúðin, sem selur afurðir úr íslenskri ull. Í búðinni má finna ýmsar vörur og handverk sem tengist íslensku ullinni. Þar er einnig starfrækt gallerý, þar sem verk margra kunnra íslenskra listamanna eru til sýnis og sölu.

Fyrsti Kioskinn farinn í vinnu

Rétt í þessu fór fyrsti Kioskinn með Disil Kiosk hugbúnaði upp settum út úr húsi. Það var mikil gleðistund þegar starfsmenn Reykjavik Excursions gengu út með ferlíkið. Þessi kassi verður staðsettur í Lefsstöð þar sem honum er ætlað að selja ferðamönnum ferðir í Flybus til að byrja með.