Nýr vefur OR í Disil 4

14.11.2007
Nýverið opnaði Orkuveita Reykjavíkur nýjan vef, or.is. Nýi vefurinn keyrir á Disil 4 og hefur að geyma mikinn fjölda sérlausna. Útlitið og aðgengismál voru í höndum Gagarín. Meðal sérlausna er eyðublaðakerfi sem hefur samskipti um vefþjónustu sem talar svo við viðskiptamannakerfi OR. Þá eru mörg sértæk eyðublöð fyrir samstarfsaðilla og viðskiptavini Orkuveitunar. Vefurinn er á nokkrum tungumálum. Atóm01 óskar OR til hamingju með glæsilegan vef.