Hugsandi Menn, Atóm01 og IGM eru Atómstöðin

23.12.2009
Kæri viðskiptavinur

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna þér að Hugsandi Menn, Atóm01 og IGM hafa verið sameinuð í eitt fyrirtæki, sem mun starfa undir nafni Atómstöðvarinnar. Sameining fyrirtækjanna undir nafni Atómstöðvarinnar tekur gildi frá og með 1 janúar 2010.

Atómstöðin hefur á að skipa 17 starfsmönnum sem veita mörgum af fremstu fyrirtækjum landsins lausnir og þjónustu á sviði hugbúnaðar og þjónustu.

Við sameininguna verða hagsmunir viðskiptavina hafðir að leiðarljósi í hvívetna. Sameiningin hefur engin áhrif á núverandi samninga og þjónusta við viðskiptavini skerðist ekki með nokkrum hætti. Þvert á móti munu lausnaúrval og þjónustuþættir Atómstöðvarinnar breikka og dýpka við sameininguna. Áfram verður unnið samkvæmt alþjóðlega vottuðum gæða- og öryggisstöðlum ISO 9001 og ÍST BS 7799.

Gildi Atómstöðvarinnar eru fagmennska, frumkvæði, jákvæðni og þjónustulund.

Við hvetjum ykkur eindregið til að hafa samband með hvers konar spurningar um framtíð og málefni fyrirtækisins. Við leggjum áherslu á gegnsæi og skilvirkni við sameininguna.

Með góðri jólakveðju!
Starfsfólk Atómstöðvarinnar.