Fyrsti Kioskinn farinn í vinnu

12.1.2008
Rétt í þessu fór fyrsti Kioskinn með Disil Kiosk hugbúnaði upp settum út úr húsi. Það var mikil gleðistund þegar starfsmenn Reykjavik Excursions gengu út með ferlíkið. Þessi kassi verður staðsettur í Lefsstöð þar sem honum er ætlað að selja ferðamönnum ferðir í Flybus til að byrja með. Disill Kiosk talar við sama sölugrunn og vefverslun RE sem gerir allt utanumhald einfalt og þægilegt. Við óskum RE til hamingju með nýja búnaðinn og vonum að þeir selji sem mest.