Bókunarvefur fyrir Arctic
24.4.2009
Nýverið setti Atom01 upp nýjan bókunarvef fyrir Arctic Adventures. Vefurinn er hugsaður sem miðlægt bókunarsvæði þar sem Arctic geta vísað af öðrum vefsvæðum umferð og þannig getur viðskiptavinur bókað hvaða ferð sem í boði er.
Vefurinn keyrir að sjálfsögðu í Disil CMS með Disil Bookings sem viðbót.
Vinnsluferlið hefur tekið töluverðan tíma þar sem um stóran og efnismikinn vef er að ræða.
Bókunarvélin var sett upp á tveim tungumálum til að byrja með ensku og þýsku.
Miða við aukningu á erlendum gestum til Íslands og mikla aukningu í netviðskiptum þá er mikil bjartsýni með að lausnin skili auknum tekjum í kassann hjá Arctic.
Atómstöðin óskar Torfa og félögum til hamingju með vefinn