Almenn ánægja með Disil 4

2.9.2009
Í byrjun árs kom út ný útgáfa af Disil CMS. Tekið hefur verið til í notendaviðmóti og aðgengi einfaldað. Þá er búið að einfalda umsýslu eininga og samræma allt útlit milli uppsetningarskjáa. Tungumálastuðiningur er orðinn enn öflugri og Disill hefur eignast nýja vini, en nú er hægt að vinna í Chrome og Opera í Disil CMS. Útgáfsustjórun er orðin öflugri og notendum býðst að fá lista yfir nýjar viðbætur fyrir hverja útgáfu. Áætlaðir útgáfudagar fyrir viðbætur eru 10 fyrir árið 2009. Hafi samband við skirfstofur Atom01 ef þið viljið kynnast bættum Disil CMS.